Um Steinasafn Petru
Steinasafn Petru ber ekki aðeins vitni um jarðfræðilega fjölbreytni Íslands heldur einnig lífsverk og ástríðu Petru Sveinsdóttur sem helgaði líf sitt því að safna steinum í íslenskri náttúru.
Safnið er opið yfir sumarmánuðina og dregur að sér þúsundir ferðalanga alls staðar að úr heiminum. Það er einstök upplifun fyrir alla aldurshópa að heimsækja safnið.
Hvort sem markmiðið er að fræðast, upplifa nýja hluti eða einfaldlega að tengjast náttúru Íslands þá finnur þú það sem þú leitar að í Steinasafni Petru.

Petra Sveinsdóttir
Í rúm 60 ár nýtti Petra hverja frístund til að leita uppi fallega og sérkennilega steina. Hún hóf að safna steinum strax á barnsaldri og hélt því áfram fram í háa elli.
Safnið er staðsett á heimili Petru og umlykur gesti með hlýju sinni og furðum frá því augnabliki að gengið er inn. Þess má geta að húsið er nánast óbreytt frá því Petra bjó þar. Það má með sanni segja að heimili hennar hafi breyst í safn.
Af áratuga elju og natni byggði hún upp safn sem inniheldur þúsundir steina, hver með sína sögu, lit og lögun. Glitrandi bergkristallar, litfagrir jaspisar, sérkennilegir geislasteinar og gljáandi biksvartar hrafntinnur taka á móti gestum innan um blómskrúð garðsins.
Til að svala forvitni og svara spurningum gesta eru upplýsingaskilti víða í safninu með ágripi af jarðfræði, sögu safnsins og lífi Petru sjálfrar.

Þróun safnsins. "Opið heimili síðan 1974"
Steinasafn Petru á Stöðvarfirði á sér merka sögu sem spannar yfir 60 ár af eldmóði og söfnunarþörf. Upphaf safnsins má rekja til Petru Sveinsdóttur sem frá unga aldri brann af áhuga á steinum og öðrum undrum náttúrunnar. Stutt skólaganga og skortur á formlegri menntun í jarðfræði og vísindum kom ekki í veg fyrir að Petra næði að koma upp gríðar fjölbreyttu úrvali af sjaldgæfum steinum og náttúrugripum. Í dag er safnið hennar þekkt og virt um víða veröld.
Eiginmaður Petru, Jón Lúðvíksson sem jafnan var kallaður Nenni, lést skyndilega árið 1974 aðeins 52 ára að aldri. Fráfall hans átti stóran þátt í að Petra opnaði heimili sitt og steinasafn almenningi og varð safnið fljótlega vinsæll áfangastaður ferðamanna. Smám saman tók húsið hennar á sig svipmót safns og hefur þróunin síðan verið stöðug og markviss með bættri aðstöðu, skipulagðari sýningum og vaxandi áherslu á fræðslu og varðveislu menningararfs.
Steinasafn Petru er starfrækt sem sjálfstætt fjölskyldufyrirtæki í eigu afkomenda Petru. Reksturinn byggir á eigin tekjum af sölu aðgöngumiða og órofa tengingu við sögu og arfleifð stofnandans. Þrátt fyrir vaxandi umfang hefur safnið alla tíð verið rekið án opinberra styrkja.
Það stendur sem vitnisburður um kraft einstaklingsins til að skapa menningarverðmæti og gegnir mikilvægu hlutverki í menningarlífi Austurlands.

Safnkostur og sýningar
Safnkostur Steinasafns Petru er einstakur á heimsvísu. Hann spannar þúsundir steina, aðallega frá Austurlandi en þó eru í safninu steinar af öllu Íslandi. Erlendir steinasafnarar hafa einnig gefið safninu steina úr sínum einkasöfnum. Fjölbreytni steinanna virðast engin takmörk sett. Það má furðu sæta hversu mörg litbrigði má finna í einum jaspissteini eða hversu ólíkir innbyrðis geislasteinar geta verið. Skal engan undra að Petra hafi hrifist af fegurð náttúrunnar og fagnað hverju tækifæri til að deila henni með öðrum.
Sérstök fræðslusýning er í garðinum þar sem mismunandi steintegundir eru settar upp og sagt frá myndun þeirra og ólíku útliti. Qr kóðar á upplýsingaskiltunum bjóða upp á lesefnið á nokkrum tungumálum.
Steinar inni í húsinu eru merktir með tegundarheiti og efnasamsetningu.
Meðal þess sem sjá má eru bergkristallar, agatsteinar, kalsít í sinni fjölbreyttustu mynd, jaspisar í endalausum litbrigðum og ópalar með sínum fögru mynstrum og litum. Stórir og smáir hrafntinnumolar, silfurberg, geislasteinar af mörgum tegundum og steingervingar víða að af landinu. Eins og áður var sagt eru í safninu steinar af öllu Íslandi. En langflestir eru þeir af Austurlandi og úr Stöðvarfirði og sannarlega er það með ólíkindum hversu fjölbreytt úrval af steinum finnst í þessum landsfjórðungi.
Safnið hefur þróast á löngum tíma, eða allt síðan Petra og Nenni fluttu í Sunnuhlíð 1946. Segja má að steinarnir hafi tekið yfir heimili Petru þegar hún var orðin ekkja og börnin flutt að heiman. En án efa hefur hún gefið þeim sitt pláss með gleði.
Samspil skrautsteina, blóma og trjágróðurs í garðinum ber því vitni hvað hægt er að gera með listrænu auga og þrautsegju þar sem íslenska sumarið getur verið erfitt í samvinnu. Að þræða göngustígana í gegnum garðinn færir gesti heim sanninn um það þvílíkt afrek þetta safn er. Fullyrða má að Petra hafi borið fleiri tonn í bakpokanum sínum niður úr fjöllunum sem umlykja Stöðvarfjörð, gjarnan í félagsskap barna sinna eða barnabarna.
Hún naut einnig aðstoðar fjölskyldunnar við mótun og viðhald safnsins. Öll sú vinna endurspeglar virðingu fyrir arfleifð hennar og þeirri sýn sem hún hafði á náttúruna sem óþrjótandi uppsprettu fegurðar, undrunar og lærdóms.
Leitast er við að virkja öll skilningarvit í garðinum. Þar má heyra lækjanið og fuglasöng, finna ilm blómanna og skynja goluna og sólskin á húðinni. Augun gleðjast yfir fegurð steinanna, litadýrð blóma og gróðurs og ljúfu samræmi í uppsetningu og hönnun. Hugurinn fyllist svo furðu yfir því hvers manneskjan er megnug með einbeitni eða ef til vill hreinlega þrjósku.

Upplifun gesta
Í Steinasafni Petru fá gestir einstaka upplifun þar sem náttúrufegurð og jarðfræðileg fjölbreytni mætast í hlýlegu og persónulegu umhverfi. Safnið er staðsett í hjarta Stöðvarfjarðar og býður upp á fjölbreytta sýningu sem höfðar til fólks á öllum aldri og með fjölbreyttan bakgrunn.
Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem gestir hafa sérstakan áhuga á jarðfræði, náttúrufræði, blóma-eða trjárækt, almennri fagurfræði eða eru hreinlega með áhuga á mannlegri náttúru. Safnið veitir innsýn í líf íslenskrar konu, eiginkonu, móður og fiskverkakonu sem segja má að ekki hafi gengið troðnar slóðir í sínu lífi. Þetta afrek sem Steinasafn Petru sannarlega er veitir gestum innblástur og hvatningu til að ná markmiðum sínum.
Safnið er á heimili hennar sem nánast er óbreytt frá því hún bjó þar sjálf. Þannig skapar það náið og óformlegt andrúmsloft sem gerir upplifunina persónulega og eftirminnilega. Hver steinn á sína sögu og er hluti af stærri sögu um náttúruna, söfnunina og arfleifð Petru. Gestir lýsa upplifun sinni oft sem óvæntri og heillandi og oft falla tár.
Í safninu er minjagripaverslun með muni gerða úr íslenskum steinum, handunnum af fjölskyldu Petru auk óunninna steina. Einnig er þar kaffihús með kaffi og bakkelsi frá Stöðvarfirði. Veitinganna er bæði hægt að njóta í notalegu glerhýsi eða úti í garðinum.
Aðstaðan í safninu er hönnuð með þarfir barna, eldri borgara og hreyfihamlaðra í huga.

Samfélag og tengsl
Steinasafn Petru gegnir mikilvægu hlutverki í menningarlífi Austurlands og hefur í gegnum tíðina byggt upp sterk tengsl við nærsamfélagið, fræðasamfélagið og gesti víðs vegar að. Safnið er ekki einungis varðveislustaður steina heldur einnig vettvangur fyrir fræðslu, samveru og menningarleg samskipti.
Safnið hefur í gegnum árin átt í virku samstarfi við skóla og menntastofnanir þar sem nemendur fá tækifæri til að kynnast jarðfræði á lifandi og aðgengilegan hátt. Einnig hefur safnið tekið þátt í fjölbreyttum menningarverkefnum og viðburðum á svæðinu þar sem list, náttúra og saga mætast. Með því hefur safnið styrkt tengsl sín við íbúa og ferðamenn og skapað vettvang fyrir samtal og lærdóm.
Safnið heldur áfram að rækta tengsl við fræðimenn, listafólk og áhugafólk um náttúruna, og er opið fyrir samstarfi sem styður við markmið þess um fræðslu og varðveislu. Arfleifð Petru lifir áfram í gegnum þetta samfélagslega hlutverk þar sem áhugi hennar á steinum hefur orðið að menningarlegri brú milli kynslóða og landa.
Hagnýtar upplýsingar
Staðsetning: Steinasafn Petru er staðsett að Fjarðarbraut 21, 755 Stöðvarfirði
Safnið er í hjarta Stöðvarfjarðar á þjóðvegi 1 og er hentugur áfangastaður fyrir ferðalanga sem ferðast um svæðið.
Opnunartímar:
Opið frá kl. 09:00 til 17:00 alla daga frá 1. maí til 15. október.
Safnið er í hjarta Stöðvarfjarðar á þjóðvegi 1 og er hentugur áfangastaður fyrir ferðalanga sem ferðast um svæðið.
Opnunartímar:
Opið frá kl. 09:00 til 17:00 alla daga frá 1. maí til 15. október.
Aðgangseyrir:
Fullorðnir: 2200 kr.
Börn 14 ára og yngri: frítt
Hópar með 10 gestum eða fleiri: 15% afsláttur
Fullorðnir: 2200 kr.
Börn 14 ára og yngri: frítt
Hópar með 10 gestum eða fleiri: 15% afsláttur
Aðstaða: Safnið býður upp á verslun með steina og minjagripi, góða salernisaðstöðu og kaffihús með léttum veitingum. Aðgengi er fyrir hreyfihamlaða og fjölskyldur með börn. Stórt, ókeypis bílastæði er við safnið.
Tengiliðir:
Sími: (+354) 475 8834
Netfang: info@steinapetra.is
Facebook / Instagram: @steinasafnpetru
Bókanir fyrir stærri hópa: info@steinapetra.is
Kynning og leiðsögn:
Boðið er upp á kynningu á safninu og leiðsögn fyrir hópa og skóla. Þessa þjónustu þarf að bóka með fyrirvara í gegnum netfang eða síma.
Tengiliðir:
Sími: (+354) 475 8834
Netfang: info@steinapetra.is
Facebook / Instagram: @steinasafnpetru
Bókanir fyrir stærri hópa: info@steinapetra.is
Kynning og leiðsögn:
Boðið er upp á kynningu á safninu og leiðsögn fyrir hópa og skóla. Þessa þjónustu þarf að bóka með fyrirvara í gegnum netfang eða síma.
