Velkomin
Steinasafn Petru er ekki aðeins safn heldur segir það sögu íslenskrar náttúru. Það segir einnig sögu einstakrar konu sem flutti fjöll - einn stein í einu. Hún helgaði líf sitt fegurð jarðarinnar og deildi henni með öðrum.
Steinasafn Petru
Á Stöðvarfirði, litlu sjávarplássi á Austfjörðum er eitt merkilegasta safn Íslands og þótt víðar væri leitað. Það er Steinasafn Petru; minnisvarði um óbilandi elju og ástríðu Petru Sveinsdóttur sem alla sína ævi safnaði steinum í fagurri náttúru Íslands.
Steinasafn Petru er opið yfir sumarmánuðina og dregur að sér ferðalanga, náttúruunnendur og fræðimenn víðsvegar að úr heiminum. Það er einstök upplifun fyrir alla aldurshópa að heimsækja safnið. Það sýnir ekki aðeins jarðfræðilega fjölbreytni Íslands heldur er það einnig undurfagur skrúðgarður þar sem auðvelt er að gleyma sér meðal blómanna.
Komdu og upplifðu kraft jarðarinnar í gegnum ævistarf Petru. Steinasafnið er ekki bara safn, það er sál landsins varðveitt í steinum.
Opið heimili síðan 1974
Í rúm 60 ár gekk Petra Sveinsdóttir, betur þekkt sem Steina-Petra um fjöll og dali Austurlands að leita steina. Hún hafði einstakt auga fyrir þeirri fegurð sem falin er undir fótum okkar.
Í dag njótum við afraksturs ævistarfs hennar í Steinasafni Petru sem löngu er orðinn ómissandi viðkomustaður þeirra sem ferðast um Austurland.
Safnið er í Sunnuhlíð, húsinu þar sem hún bjó með eiginmanni sínum, Jóni Ingimundarsyni (Nenna) og börnunum þeirra 4. Árið 1974 lést Nenni skyndilega aðeins 52 ára gamall. Andlát hans átti stóran þátt í því að Petra opnaði heimili sitt og steinasafn fyrir gestum.
Petra bjó áfram í Sunnuhlíð fram á elli ár og með tímanum tóku steinarnir hennar yfir húsið.
Í dag gengur fólk um heimili Petru eins og það leit út meðan hún bjó þar sjálf, innan um alla steinana.
Bókin Steina Petra eftir Þorgrím Þráinsson segir sögu þessarar merkilegu konu.
Svo miklu meira en bara steinar
Blómahaf
Náttúrubarnið Petra hafði mikinn áhuga á ræktun hverskonar. Skógrækt var henni mjög hugleikin sem og ræktun blóma. Jafnskjótt og Petra og eiginmaður hennar, Nenni fluttu inn í Sunnuhlíð 1946 hófu þau að planta trjám til að skýla fyrir kaldri norðanátt og hryssingslegri hafáttinni. Garðurinn hennar er í dag undurfagur skrúðgarður þar sem harðgerar íslenskar plöntur vaxta í bland við viðkvæmar erlendar jurtir. Má þar nefna Himalayan Poppy (Meconopsis grandis) sem með sínum fagurbláa lit vekur undrun og aðdáun.
Víða í garðinum eru setbekkir þar sem gestir geta tyllt sér og hlustað á vindinn leika í laufi trjánna og fugla syngja.
Víða í garðinum eru setbekkir þar sem gestir geta tyllt sér og hlustað á vindinn leika í laufi trjánna og fugla syngja.
Safnasafn
Söfnun Petru einskorðaðist ekki bara við skrautsteina. Hún safnaði einnig uppstoppuðum fuglum og eggjum, skeljum og kuðungum, lyklakippum, pennum, vasaklútum og ýmsu öðru sem gaman er að skoða. Fuglasafnið telur meira en 70 fugla, flesta íslenska en einnig nokkra erlenda flækingsfugla auk nokkurra íslenskra spendýra. Þar vekur selkópur mesta athygli en refir og minkar njóta líka hylli smáfólksins.
Kaffi Sunnó
Eftir að hafa dáðst að steinum og andað að sér ilmi blóma er kominn tími til að setjast niður með kaffibolla og kökubita. Nú-eða súpuskál og nýbakað brauð. Í Kaffi Sunnó má fá ilmandi hágæða kaffi framleitt á Stöðvarfirði í kaffibrennslunni Kvörn, te, kakó, gosdrykki og safa. Brauðdagar Deighús, einnig staðsett á Stöðvarfirði sér gestum fyrir gómsætu sætabrauði og bragðgóðu súrdeigs-brauði.
Veitinganna er hægt að njóta inni í sólskála hússins eða úti undir beru lofti í garðinum.
Veitinganna er hægt að njóta inni í sólskála hússins eða úti undir beru lofti í garðinum.
Opnunartímar og þjónusta
Safnið er opið
frá 1. maí til 15. október
Opið er frá klukkan 09:00 til 17:00 alla daga
Hlökkum til að sjá ykkur
Opið er frá klukkan 09:00 til 17:00 alla daga
Hlökkum til að sjá ykkur
Aðgangseyrir
er 2200 kr. fyrir fullorðna.
Frítt fyrir 14 ára og yngri.
15% afsláttur fyrir hópa sem innihalda að lágmarki 10 manns.
15% afsláttur fyrir hópa sem innihalda að lágmarki 10 manns.
Þjóðvegur 1
liggur í gegnum Stöðvarfjörð og þegar haldið er í gegnum þorpið blasir húsið hennar Petru við.
Bókanir
Það er ekki nauðsynlegt að bóka komu í safnið á opnunartíma, nema ef um stærri hópa sé að ræða. Hafðu samband
Kaffi Sunnó
býður upp á ljúfmeti af ýmsu tagi. Hágæða kaffið okkar er brennt og malað á Stöðvarfirði í Kaffibrennslunni Kvörn og brauð og kökur koma frá Brauðdögum, einnig frá Stöðvarfirði
Aðgengi
fyrir hreyfihamlaða er gott
Salernisaðstaða
Er góð og snyrtileg
Bílastæði
Rúmgóð, ókeypis bílastæði eru við safnið

