Einstaka Ísland – Austurland og Steinasafn Petru

Austurland er töfrandi svæði þar sem náttúran sýnir sig í sínum fjölbreyttasta búningi. Þar má finna jökla, skóga, fuglabjörg, víðerni, eyðisanda, tignarleg fjöll og djúpa firði – allt í nánu samspili sem skapar einstaka upplifun fyrir gesti og heimamenn.   
Í hjarta þessa svæðis er Steinasafn Petru í Stöðvarfirði, eitt merkasta safn sinnar tegundar á Íslandi og mögulega heiminum öllum. 

Söfnun Petru Sveinsdóttur hófst þegar á barnsaldri en árið 1946 markaði tímamót þegar hún eignaðist eigið húsnæði og land og þar með aðstöðu til að geyma steinana sína. 1974 urðu svo önnur tímamót þegar eiginmaður hennar, Nenni lést skyndilega eftir stutt veikindi. Til að heiðra minningu hans opnaði Petra safnið sitt fyrir almenningi. Það veitir einstaka innsýn í jarðfræði Austurlands og fegurð þá sem er allt í kringum okkur.   

Petra gekk um fjöll og dali Austurlands í leit að gjöfum náttúrunnar í formi fagurra steina. Safnið hennar endurspeglar ekki aðeins jarðfræðilega fjölbreytni svæðisins, heldur einnig persónulega sögu og lífshlaup Petru.

Steinasafnið með augum ferðalangsins.

 

Á steinasafnið koma alls konar gestir. Þessi ferðabloggari sá ástæðu til að gera þetta fallega vídeó og setja á netið. 

Birt með leyfi
https://www.instagram.com/thearcticspiral
@thearcticspiral


Myndskeið frá Roll Around Iceland

Stöllurnar í Roll around Iceland heimsóttu Stöðvarfjörð árið 2020 og komu við á safninu. Á Stöðvarfirði er einnig áhugaverður handverksmarkaður sem gaman er að heimsækja. 

Birt með leyfi
www.youtube.com/@rollaroundicelandofficialc3996

Einstaka Ísland: Austurland

Í þessu myndbandi frá árinu 2014 er fjallað um Austurland í máli og myndum. Meðal annars er komið við á Steinasafni Petru þar sem rætt er við Ívar Ingimarsson, barnabarn Petru.

Myndbandið í heild sýnir vel hversu margar hliðar hið fagra Austurland hefur, bæði í menningarlegu tilliti og náttúrufarslegu. Rætt er við heimafólk og sagt frá áhugaverðum stöðum sem gaman er að heimsækja.

 

Fólkið í landinu

Áhugavert viðtal við Petru um ævi hennar, störf og safnið.

Viðtalið er tekið árið 1991, en í því sjást vel þær breytingar sem hafa orðið á safninu í gegnum árin. 

Leit